Danska beiglan
13.09.2006 22:36:53 / daggahar

HHÆHÆHÆHÆHÆHÆHÆHÆHÆHÆHÆ

hæ sæta fólk!! væruð þið til í að senda á mig blogginn ykkar svo að við getum fylgst með ykkur .. Annars er allt gott að frétta við erum bara að velja einhvað af þessum miljóni mynda sem að Sverrir er búinn að taka í danmerkunni . Það er sól og 20 stiga hiti hérna hjá okkur eins og alltaf á Íslandi . Skemmtistaðirnir eru allir á samastað og ss pulsu vagninn líka. Annars var ég að velta því fyrir mér um daginn hvað væri hægt að gera hérna á klakanum annað en að fara í bæinn eða bíjó!! og var að spá í hvort að ég og Sverrir skellum okkur ekki bara í hvalaskoðunn ....einhvern sólardaginn ....:) svo eitt heillarráð í lokinn .....það er sleift í stiganum á Sólon....bara minna liði á það .....náði svona nett í slómósjon að hrinja niður stigann og krækja í brjósthaldarann á einhverri gellu í leiðinni!!! heirumst síðar bæ bæ :)

» 4 hafa sagt sína skoðun

04.09.2006 10:55:36 / daggahar

Erum kominn á klakann

hæhæhæ við erum kominn heim í rigningaland ísland , söknum ykkar alveg ómægod mikið , við erum að vinna í að setja myndir inn , kveðjur og kossar . dagga og sverrir

» 5 hafa sagt sína skoðun

27.07.2006 19:44:56 / daggahar

sjoppingahöfn

Hæ hæ það er svolítið síðan að ég skrifaði síðast en það er einfaldlega bara af því að við erum búinn að hafa það svo gott í köben. Ásta vinkona var hjá okkur í nokkra daga og nutum við þess að vera í sólbaði á bryggjunni ,sitja á kaffi húsum og svo auðvita veslað, mér leið bara eins og túrista því að pokkarnir mínir voru alveg jafn þunngir og hennar , á veslunnarleiðangri okkar . Svo kíkktum við á Trúbadorastaðinn fræga , þar sem að einstaklega lélegir trúbadorar koma fram , og náðum við einmitt einu stikki  sætum skotta , ástrala og útlendingi á sekstugsaldri, það var stuð á köllonum  og skemmtum við okkur konung lega, fórum út að borða dönsuðum á Ventígó :) Takk æðislega fyrir  komuna Ásta vinkona , þú ert svo búanleg að ég var að spá í hvort að við kaupum ekki bara stóra húsið öll saman (einkahúmor dauðans). Sverrir og ég erum annars bara búinn að vera að reina að sjúga alla sólina og njótta þess að vera hér því að við erum að fara að flytja heim 4. ágúst .Fullt af spennandihlutum að fara að gerast hjá okkur á klakanum sem að koma í ljós síðar. Spurning um að reyna að draga sólina með okkur heim. Ef þið eigið Bíl til þess að gefa okkur og íbúð á 101 þá væri það brilijant  djók .....eða hvað!! okkur hlakkar allavana til að vera hjá fjölskyldu og vinum heima, en auðvitað á maður líka eftir að sakkna þess að vera hér , Danskan svona öll að koma og fullt af frábæru fólki hérna í danaveldi. Það verður haldið kveðju partí undir Bátnum á bryggjunni á Laugardaginn fyrir alla  og þér er boðið!! kveðja frá  döggu löggu og sverra perra :)


» 6 hafa sagt sína skoðun

24.07.2006 17:17:00 / daggahar

Gullkorn!!

JÁKVÆÐIR HLUTIR , KOMAFYRIR JÁKVÆTT FÓLK!!!!!!!!

» 1 hafa sagt sína skoðun

15.07.2006 16:38:42 / daggahar

Gullkorn!!

EF ÞÚ LIFIR Í FORTÍÐINNI!!!!!,ÞÁ  HEFUR ÞAÐ ÁHRIF Á FRAMTÍÐINA!!!!!!

» 4 hafa sagt sína skoðun

12.07.2006 21:08:40 / daggahar

timmmmiiii

12.júl 2006

  hérna er búið að vera æðislega gamann hjá okkur , við feingum Eddu og Hjalta í heimsókn og skemmtum okkur konunglega með þeim . Fórum út að borða á geggjuðum ítölskum stað með ma og Pa hans Sverrirs ,Ristorante NAVONA, og hlustuðum á Jazz um kvöldið . Edda og Hjalti , Marlin og Rúnar og fleiri (við) héldum svo á stað á aðal Mambó stað bæjarins …bara Snildar staður ..svona pínu eins og að vera kominn til kúbu J einginn að dansa hliðar saman hliðar í grúbbu ….bara alvöru Mambó !!! meðan við sátum og spjölluðum , kom eitt stikki grænlendingur að mér , sem var ekki hærri en svona 140 , og bauð mér í dans …..Sverrir gaf mér að sjálfsögðuleifi , og þá var það bara sveiblan á dansgólfinnu …ég risinn og hann strumppurinn, svaka fílingur (aldrei dansað við svona lítinn mann ) J Við fíluðum okkur allavana öll þarna geggjað gaman og tókum Mambóið alvarlega..hihi Sverrir er nú bara sleipur dansari J . Hljómsveitinn Hjálmar fór úr kostum í Kristjaníju , og að sjálfsögðu vörum við á staðnum , Edda og ég dansandi reggí í svitanum hihi., Svo var sólað sig á bryggjunni og út um allt, þau feingu líka svo geggjað veður , sáttum á íslandsbryggjunni á teppi og hlustuðum á Eivör Páls syngja á bryggju tónleikum. Síðar um kvöldið sungum við im a barby girl í karóki saman ég og Edda , við frekar lélegar undirtektir af  grúbpíunni Jens (sem við þekkum ekkert en reyndi að koma sér fyrir á öllum myndonum) . Sverrir og Hjalti voru duglegir að horfa á fótboltan ,héldu þeir að sjálfsögðu með sittkvoru liðinnu , Hjalti hélt með ítalíju og fagnaði hástöfum í fullum sal af fólki sem hélt með frakklandi, ég hefði viljað vera fluga á vegg , hann er svo mikið krútt J vakti mikla lukku .

Á meðan sátum við

 Edda og spókuðum okkur um stræti kaupmannahafnar .já já svo má ekki gleima því að við forum öll samann út að borða á Áströlskum veitinga stað , þar sem að allir feingu sér krókudíl eða keingúrunna skippí í kvöld mat …nema ég var ekki alveg að þora í þetta en smakkaði smá og allir voru mjög sáttir J Auðvitað var Istegade skoðuð en….…við forum ekkert nánar út í það , nema að sjálfsögðu þá er gaman að seigja frá því að eitt stikki ánægja …hjá þessum myndalegu konum kostar 50 dkr og Pizza með öllu og stór kók 75 dkr já já alltaf gaman að telja hversu margar ánægjur fötinn kosta þegar það er veslað hér hihihihi 

Seinasta daginn hjá krökkunum héldum við Edda á stað í Tívolíið …jeijjj það var geggjað gamann , við vorum eins og krakkar hlaupandi út um allt í rússí banana og barnatækinn reyndar líka …við bara urðum að prófa allt . Það var ekkert smá gamann hjá okkur . Við viljum þakka ykkur æðislega fyrir komuna og það er virkilega gaman að vera með ykkur , einginn spurning að það þarf að plana næsta sumar með ykkur , hei við komum bara með í brúðkaupsferðina hihi djók. kossar og knús 

 

p.s Timmmmmmmmííííííííííí………

prumpakúkatralalalalalal

 ´

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

03.07.2006 11:30:12 / daggahar

sól sól sól

SÓL SÓL OG GEGGUÐ SÓL JEIJJJJJJJJJJJJJJJJJJJ VIÐ BÍÐUM SPENNT EFTIR EDDU OG HJALTA !!! SÓL SÓL SÓL UMMMMMMM NÆS!!!!!!!

!Ǯ̓㎰ϒ㌀ϒ㩅ㄠ瀰tǭ̍牢̀Āë̌�ϔ⪸ϋରϕ

» 1 hafa sagt sína skoðun

24.06.2006 15:53:37 / daggahar

Islandsferd

hæ hæ, ég kom nú þónokkrum á óvart á miðvikudag 14 jún , þegar við lentum á klakanum :) Sara vinkona okkar og Erik voru að gifta sig 17 júní , og gátum við ekki hugsað okkur að missa af því :) .. Við lentum seint á miðvikudags kvöldið og vorum ekki komin heim fyrr en hálf tvö, þar beið mamma og Íris eftir okkur ...ooo það var svo gott að koma heim . Sverrir var enþá með þetta fína glóðurauga , eftir heimilisofbeldið!!! Já ég veit ég verð að hætta að berja kallinn …..hihi..( hann lenti bara í smá gannislag með vini sínum, óskupsaklaust. ) Við vorum í svo stuttan tíma að það var allt fullbókað hjá okkur á íslandi , gaman af því  Hei Edda vinkona sagði einu sinni við mig að það væri ekki hægt að koma henni á óvart …reyndar er það svolítið til hjá henni ..því að hún kemst alltaf að hlutonum áður en þeir gerast!!! En jú jú hún bjóst ekki við að sjá mig standa í stiga ganginum hjá sér á fimmtudaginn ….heheh þarna tókst mér það , Svo var haldið til Ástu …ég læddist inn í húsið og beið eftir því að hún kæmi út úr sturtu …hehehe ógeðslega fyndið …alveg eins og í bíómynd hún gafti bara ..(half nakinn á ganginum ) og í því kemur fullt af strákum inn um ganginn hihihi …Ásta ég veit að þú átt eftir að hefna þín á mér  djók .Um kvöldið var Hárgreiðsluparty ..fullt af stelpum sem voru með mér í skólanum . Svaka stuð hjá hár túttonum eins og ávalt …þá er hárgreiðslu fólk bara skemmtilegra en annað folk !! djók ( algert diss) Á föstudeiginum var útskrifta party hjá Brósa lögfræðing… öll famelían og svo party um kvöldið geggjað gaman …Árni brósi var búin að baka köku og gera heita rétti og ég veit ekki hvað og hvað! Spurning hvort að hann hafi verið að klára húsmæðraskólan frekar en Lögfræði..hihi þú átt hrós skilið brósi, 7 mínótum eldri en ég , hehehe ég er bara unglingur meðal við þig !!! Svo kom að laugardeiginum , brúðkaupið hjá Söru og Erik .Það var svo gaman og þau eru svo sæt , og Jenný Una dóttir þeirra er alger krúsídúlla . Þau giftu sig í Las Vegas , og feyngum við að sjá myndir frá Athöfninni, auðvitað var Elvis Presley ..á svæðinu syngjandi Love me tender ..í lítilli sætri kabellu . Svo var dansað fram á nótt í brúðkaupinu , og sjálfsögðu dj Andrea …kom fólkinu í gírinnn á meðan Una stóra kendi fólki að dansa , dansinn að byggja hús  við skemmtum okkur konunglega og þökkum ynnilega fyrir okkur . Núna erum við á leiðini til Svíþjóðar í sumar húsið hjá Gerði og Binni , heyrumst síðar Dagga og Sverrir

» 3 hafa sagt sína skoðun

09.06.2006 21:59:39 / daggahar

Dání er farin og Dagný komin!!!

hæhæ oooo það er búið að vera geggjað veður í köben seinustu daga . Ég var að byrja á nýrri stofu sem heitir Eminentia , frábær stofa og geggjaður eigandi , hún heitir kristína (eins og helmingurinn af dönskum konum ) og þegar ég spurði hana um reglur fyrirtækissins, þá sagði hún að ég mætti ekki mæta nakin í vinnuna ...og að það sé eina reglan !!!! Ég vinn bara mína vinnu og hún sína alveg eins og ég vil hafa það :) . Þetta er lítil stofa en samt með karakter og Gallery . Einn galli samt og það er að hún talar ekki ensku ,svo að ég er búin að tala nánast eingöngu Dönsku í vinnuni ! frekar fyndið ! .því að ég tala eins og 6 ára krakki, en skil hana nú helvíti vel !!! ( hún var að hlæja af mér í dag , því að það er búið að vera svolítið af íslendingum á stofunni....og sagði að það væri skítt að hún gætti ekki baktalað mig á dönsku ..því að þá myndi ég skilja það , en ég gætti vel baktalað hana á íslensku !!..(.eins og hún hljómar í hennar eirum er það gagrrrraggggraggra..) snyld ! En annars er bara gott að frétta , gott veður gaman í vinnuni og Sverrir er að fara að dúxa á lokaverkefninu sínu :) Fer bara helvede vel um okkur . Ég hitti Arnar og kristján um daginn í Tivolíinu ! Þeir komu til köben í sólina. Arnar var búin að kaupa miða fyrir mig í Fallturnin fræga, og héldu við beint af stað þanngað. :) .Shit ég er svo lofthræt og var næstum búin að guggna ...en nei Við Arnar skelltum okkur af stað ..ég öskraði náttúrulega eins og hálviti ...og Arnar dáðist bara af útsýninu þegar upp var komið ! geggjað gaman !!! Gaman að sjá ykkur strákar! Til Hamingju Árni brósi með prófin herra Lögfræðingur , Til hamingju Ásta með að komast inn í skólan Frú Tannálfur , Heirumst fljótt aftur . Dagga og svessi í köben

» 7 hafa sagt sína skoðun

29.05.2006 16:37:40 / daggahar

Pælingar og húsráð!!!

jæja smá  bull frá mér ...hef verið að velta fyrir mér asnalegum hlutum og endilega komið með fáránlegar pælingar í Athugasemdir . Sko þar sem að ég er ekki Dani og skil ekki dönskuna 100% hef ég feingið að finna fyrir því hvernig sé að vera ósýnileg , um daginn voru allar Stelpurnar inná kaffistofu að spjalla og ég skildi 3 hvert orð svo að ég var ekki inn í samræðonum, það var speigill við hliðinn á mér og ég sá mig , en þær sáu mig ekki hm hm pæling skrítið að geta verið ósýnileg .Stundum byrja ég líka að tala bara íslensku í vinnunni en einginn skilur hvað ég er að seigja ...pæling : afhverju tala ekki allir bara samatungumálið ?? bögg ,

Hefur þú einhverntímann lent í því að vera að vaska upp og vera alveg að pissa á þig ? gerist mjög oft hjá mér hihi :)

Um daginn fórum við, með ég veit ekki hvað mörg kíló af þvotti uppí þvotta hús. Svo fór ég aftur niðrettir til þess að setja í þurkarann ..jú jú hann fór í gang og ældi svo á mig 70 einakrónum , vá ég hélt að ég hafi verið að vinna í lottói , þegar ég kom heim þá fannst Sverrir þetta einhvað skrítið . svo að þegar við náðum í þvottinn þá var hann allur blautur og það var alveg að fara að loka þvottahúsinu Greid ...ég vann samsagt ekki í Lottói þvottahúsins , heldur ítti bara á vitlausan takka . Svolítið tíbískt ég :)

Hei svo var ég spurð um daginn hvort að ég væri Tirkki ...það var einmitt í einni af Araba sjopponum hérna ..nei ég er ekki tirki og ekki írsk og ekki spænsk . þetta er svona það algeingasta jú og svo var ég reyndar einu sinni spurð hvort að ég væri sænsk...já og eitt skiptið hvort að ég kæmi frá Afríku....æji Dagný ekki ganga of langt í gleðinni djók

Pæling dagsins er  hversu leingi þarf að sjóða Egg svo að þau verði svona mjúk í miðjunni ?   hmmmmmmmmmmm

já og svo eitt húsráð í lokinn , Hefur þú lent í því að eiga ekki til kaffi poka? minsta mál klósettpappírinn reddar málinu sem síja ...fínasta kaffi nammi namm


» 6 hafa sagt sína skoðun

18.05.2006 17:56:32 / daggahar

Stelpurnar mættar á svæðið!

Já stelpurnar eru mættar á svæðið og bættist Begga við í gær, Foreldrar hennar gáfu henni miða til köben og því fleiri því betra . Ótrúlega næs að hafa meira plás heldur en var í hinni íbúðinni . Í gær fórum við að skoða strikið og lentum á æðislegum japönskum stað um kvöldið ....þar sem við átum og átum á okkur gat og getum við sko mælt með þessum stað.(þar sem japanir borða er góður japanskur staður ,og um tíma vorum við eina hvíta fólkið þarna inni) Þjóninn okkar sagði góðan daginn á íslensku...hmhm ættli að jón ásgeir eigi þennan stað ...nei djók. Seinna um kvöldið fórum við á l.a bar og dönsuðum triltan dans á dansgólfinu ...ekki voru það ófáir karlmennirnir sem litu stelpurnar girnaraugum og vildu fá að dansa við þær ...en nei þetta var V.I.P kvöld hjá okkur stelponum og eingum boðið nema auðvitað að að vera í geinginu , Eva vinkona mín kom með okkur og þekkir nú betur á kaupmannahöfn heldur en ég , því ég veit ekki hversu oft ég hefði vilst ef hún hefði ekki verið með ..ógeðslega gaman hjá okkur , á einum Barnum reyndar, hittum við danskar stelpur sem að voru með höfuðnuddtæki frá kristjaníju, og feyngum við allar að prófa . gæsahúð þetta er svo næs og eingin spurning að við verðum að redda okkur svona tæki . Núna eru stelpurnar í fildes molinnu að vesla og afþakkaði ég pent því að buddan er svo létt hjá mér þennarn mánuðinn.
Ég og Sverrir klipptum hárið á mér um daginn , með skæri og rauðvínsflösku er hægt að gera allt  ,og gekk það bara mjög vel og ég er mega mikill Töffari núna , Ég er farinn að sjá eftir því að látta danina um hárið á mér .hef allavana aldrei fílað það sem þau gera , Sverrir hefur þetta í sér og kannski bara í genonum því að mamma hans er hárgreiðslukona.hihi. :)  heirumst fljótt aftur því að sagan af sex in the city er en í gangi . túttur tjútta

» 3 hafa sagt sína skoðun

07.05.2006 21:49:21 / daggahar

Leitinn mikla á enda !!

( lesið greinina eins og strumpur)   Vá ef ég væri einhverntímann til í að vera atvinnulaus, eða fá hreynlega borgað fyrir að gera ekki neitt ..þá er það núna , sól og sumar !!Hérna rétt hjá á íslandsbryggjunni er sólar paradís, stór garður með sundlaug ,svo er hægt að grila þar .Á Nyhavn er svo eins og það sé verið að halda uppá 17 júni ...fullt af fólki að steikja sig í sólinni . við Efa fóru einmitt í garðinn hérna og svo á nyhafn og tókum danann á þetta..sáttum og sleiktum sólina með ís og  færeying við hliðina á okkur sem spilaði bubba  á gítar og sagðist eiga íslenska ömmu ...talaði nú ágætta íslensku kallinn ! Annars er nú svolítið mikið að frétta því að við VORUM AÐ FÁ ÍBÚÐ JEIJJJJJ!!! á frábærum stað hérna bara í næstu götu við okkur . Konan sem á íbúðina hafði einmitt tekið eftir auglýsingu sem  að við settum upp út um alla bryggjuna , Við hittum hana einmitt áðan og feingum að vita að við flytjum næsta sunnudag jejjjjjjjjjj 60 fermetrar með stórri stofu , svefn herbergi , eldhúsi og svo sýnirshorn af baðherbergi..mjög kósí :) gott að við fáum hana áður en að steplurnar koma, því að þá fer betur um okkur .Sverrir var að taka myndir af mér í dag og ættlar að nota þær einhvað í lokaverkefnið sitt ,,,ég var svona að gretta mig og gera svipi ..verð að seigja að það minnti mig ómetanlega á þegar ég fór í prufu til að leika í myndinni hans Ævars ...þegar ég las af handritinu og átti að leika einhverja leiðindar stelpu fyrir framan kameru og þjá aðila sem voru að meta mig hvort að ég væri leikari ...bara fyndið (svona idol næmi), ég sem hélt að leikarinn væri í mér en nei ég fékk ekki hlutverkið ...var hreinlega of góður leikari (skot á ævar!!) ég leik bara í næst mynd hjá þér, þú manst þú skuldar mér hlutverk ..djók nei nei ég er víst ekki með þá hæfileika , Íris systir sér um þá deild í fameliunni. Svo er bara gott að frétta , Sverrir á fullu í lokaverkefninu sínu og okkur hlakkar til að njóta þess að vera hér í sumar..bæjó í bili. tralalalalalaaaa....la...la...la...laa la..G:o)


» 8 hafa sagt sína skoðun

25.04.2006 22:09:08 / daggahar

Það er alveg að koma sumar jeijjjj!!!

Jebb það er alveg að fara að koma sumar Grasið er grænt og Hildur og Þóra alveg að fara að koma í heimsókn jeijj mig hlakkar svo til :)
Það er búið að vera frekar rólegt, fyrir utan auðvitað trilltan dans á Glaða grísnum, þar sem að Klara tók foot loos dansinn fræga alveg eins og í bójómyndinni !!! geggjað flott hjá henni, ég þorði nú ekki einu sinni í hana með Feita Flóðhestinn, verð bara að fara að æfa nýjan dans heima. Já og svo verð ég líka að hætta að ljúga að ókunnugum, ég gæti hitt þetta fólk aftur ég bý víst hérna en er ekki í sumarfríi ...Verð stundum alveg krónískur lygari, laug einhverju ruggli að einhverjum indverja, löng saga ...einhvað ég er svo rík og fræg og ég get ekki nefnt fyrirtækið sem ég vinn hjá, því að ég geri það ekki þegar ég er í glasi skjilið þið hvað ég á við ? algert rugl...bla bla..
Biggi og Jórunn komu í heimsókn, frábært að sjá þau ...auðvitað fengu þau að smakka á Rauðvíninnu frá Hungrí ...sagði að það yrðu þeir fyrstu sem kæmu í heimsókn ,hehe, við lifðum Rauðvínið af en geymdum Pizzusósusnafs bruggið ...svona fyrir næstu sem koma í heimsókn , hugsa að það verði Hildur og Þóra mmmuhahaha huggulegt !
Það er nóg af skrítnu fólki hérna og ættum  við að fara að hafa myndavél á okkur þegar við löbbum hérna um !! Eins og en nágranna kellinginn sem er um 90 til 130 ára krumpuð  með krippu og alltaf í pels, krúttíkona, örugglega svona slúðurkonan í hverfinu veit allt um alla og dadadadaaaaaa...kannski mamma Mafíjósans sem rekur veitingastaðinn niðri ...í alvöru svona tíbískur mafíjósa look á veitingstaðnum og gaurarnir sem reka hann ..."Tony ..take care of him" ...(lesist með rámri röddu)
verð að fara Sex and the citty í tv bæjó
p.s slúður konan

» 8 hafa sagt sína skoðun

16.04.2006 13:24:30 / daggahar

GLEÐILEGA PÁSKA!!!

Gleðilega Páska!! Allir!

Ég var einmitt að finna Páskaeggið mitt, Sverrir faldi það á svo góðum stað að hann þurfti að gefa mér hint, á felustaðinn, Ég faldi líka hans , og þefaði hann það uppi, við erum ekkert smá ánægð að geta étið íslenskt súkkulaði um Páskana....! HVERNIG ER MÁLSÁTTURINN YKKAR ?LÁTTIÐ MIG VITA, gamann af þessum málsáttum, hvernig fólk er að semja málsáttana? í okkar málsættir voru samdir frá elliheimilinu Grund : minn er svona : GÓÐUR ÞEGN ÞARFNAST ENGRA FORFEÐRA! Sverrirs:  EKKI VERÐUR BÓKVITIÐ Í ASKANA LÁTIÐ!! Greinilegt að málsátturinn er ekki búinn fyrir börn ...eru Páskaegg bara fyrir fullorðna? Annars hef ég nett gaman af málsáttum hvernig sem þeir hljóða! Mínir minnilegustu Páskar eru þegar mamma og Pabbi bjuggu til Páskaegg fyrir okkur , og málsættina, mig minni að minn hafi verið : svo mikið getur ein stelpa sungið að hún gerir alla brjálaða...!! Þetta voru bestu Páskarnir ,við feingum líka ógó mikið nammi inní okkar Páskaeggi. En ég efast um að ég gætti haft þolinmæðina í að búa til Páskaegg ´svaka ves. Nói Frændi sér um málið!! Í kvöld ættlum við að elda saman með Klöru og Hila , Hamborgarhrygg með meiru ..Láttum strákana um málið , ég og Klara erum svona líka misheppnaðir kokkar ,( Framtíða konur), sem getur verið fínnt ,að sita með hvítvín og bíða eftir mattnum . nei við hjálpum strákonum. Góða Páska elskurnar mínar .


» 7 hafa sagt sína skoðun

12.04.2006 13:20:48 / daggahar

Ég er ekki kona , ég er Stelpa!!!

Hæ ! núna er ég í nýjutölvunni minni , með kökku í ofninum !!! er ekkert að grínast ..Það er kaka í ofninum ..sem ég er að baka , núna ættla ég að koma Sverrir á óvart . ´Við gáttum ekkert sofið í nótt vegna Celidion kellingunar sem bír fyrir ofan okkur , hún var með diskinn á 100 og einginn gat sofið í húsinu ,fólk var byrjað að slá í rörin hérna og öskra á beljuna ...svona ángríns þá voru við byrjuð að spá hvort gellan væri dauð heima hjá sér ...en um klukkan 3 leitið fattaði hún hinntið og fólk gat loksins sofið. skríttnir þessir nágrannar okkar . Það búa gömul hjón hérna við hliðiná frá hungrí ...en gaurinn virðist ekkert hungrí ...því að bumban  á honum er haldinn uppi með Axlaböndum (smá aula húmor) !! samt fínt fólk , hann bankaði uppá um daginn , þegar ég var ein heima ,,,babblaði einhvað og rétti mér 2 rauðvínsflöskur sem hann bruggar sjálfur .þegar Sverrir var kominn heim ,kom hann aftur með einhvað sætt áfeingi ..(sem hann bruggar líka ) og sagði honum að þetta væri fyrir konuna !!! Ég er STELPA, hei, Erum búin að vera að spá hvort að hann sé að eitra fyrir okkur ...hann hefur nefnilega einu sinni kvartað yfir okkur ( Þegar afmælið mitt var)  nei valla!!! en við þorum ekki en í rauðvínina ..svo að næstu gestir fá bara að bragða á henni hehe ´! jæja ég þarf að ath með baksturinn bæjó


» 7 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3